Foreldrafélag Fögrubrekku

 

Foreldrafélag Fögrubrekku er virkt félag. Landssamtök foreldrafélaga styðja við bakið á foreldrafélögum og veita ýmsar upplýsingar. Lög foreldrafélagsins eru í möppu félagsins sem geymd eru í leikskólanum og öllum frjáls.

Meginmarkmið félagsins er að styðja og styrkja það uppeldisstarf sem unnið er í leikskólanum. Foreldrar greiða ákveðna upphæð í sérstakan sjóð sem notaður er til að auðga skólastarfið t.d. með ferðum, gjöfum til leikskólans og barnanna og leiksýningum. Stjórn félagsins leggur til á aðalfundi félagsins hver upphæðin á að vera og ber það undir samþykki. Upphæðin er innheimt með gíróseðli tvisvar á ári

Aðalfundur foreldrafélagsins er haldinn að hausti.

Fundargerð aðalfundar foreldrafélagsins haustið 2021.

 

Stjórn Foreldrafélags Fögrubrekku

Sólrún Rós Eiríksdóttir formaður

Helgi Möller gjaldkeri

Hildur Skarphéðinsdóttir ritari

Tryggvi Níelsson meðstjórnandi

Svanhvít Ljósbjörg Gígja meðstjórnandi

Kamilla Rut Ragnarsdóttir meðstjórnandi

Karlotta Helgadóttir meðstjórnandi

Starfsreglur foreldrafélagsins

 

Hér að neðan eru drög að lögum félagsins sem byggð eru á almennri töllögu Foreldrasamtakanna.

1. gr. Félagið heitir Foreldrafélag Leikskólans Fögrubrekku og er opið foreldrum og forráðamönnum barna í leikskólanum Fögrubrekku. Félagið er einnig opið starfsfólki leikskólans.

2. gr. Markmið félagsins er að tryggja sem best velferð barna í leikskólanum Fögrubrekku.

3. gr. Leiðir að markmiðu skal félagið móta á aðal- eða félagsfundi. Bókfæra skal allar ákvarðanir.

4. gr. Sjórn félagsins er kosin ár hvert á aðalfundi og skal hún skipuð 5 mönnum amk, þar af einum starfsmanni leikskólans. Kjörtímabil stjórnar er 1 ár. Stjórn skiptir sjálf með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund.

5. gr . Upphæð gjalds í foreldrasjóð er ákveðið á aðalfundi og greiðst 2svar á ári. Foreldrafálgið annast innheimtu þess.

6. gr. Aðalfund skla halda á tímabilinu 15.september - 1.nóvember ár hvert. Boða skal til hans með auglýsingu með amk 10 daga fyrirvara.

7. gr. Tillögur til lagabreytinga vareða að hafa borist stjórn skriflega í síðasta lagi 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund.